Með lögum nr. 108/2007, um verðbréfaviðskipti var innleidd í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga (e. Markets in Financial Instruments Directive eða svokölluð MiFID-tilskipun) og tilskipun um samræmingu krafna um gagnsæi í tengslum við upplýsingar um útgefendur verðbréfa sem eru skráð á skipulegan markað (e. Transparency Directive eða gagnsæistilskipunin).
MiFID-tilskipunin nær til allra ríkja á EES svæðinu, þ.e. aðildarríkja ESB auk Íslands, Noregs og Liechtenstein. Með lögunum breyttust ýmsar mikilvægar reglur sem lúta að því hvernig staðið skal að verðbréfaviðskiptum. Markmið laganna er að setja samræmdar reglur um neytendavernd fjárfesta og skapa sameiginlegan innri markað með fjármálaþjónustu. Lögð er áhersla á aukið eftirlit, faglega framkvæmd og upplýsingagjöf. Þá er löggjöfinni ætlað að tryggja að þeir viðskiptavinir fjármálafyrirtækja, sem eiga í verðbréfaviðskiptum, fái ávallt viðeigandi upplýsingar og ráðgjöf. Til þess að svo megi verða eru lagðar auknar skyldur á viðskiptavini um upplýsingagjöf til fjármálafyrirtækja.
Til að verðbréfaviðskipti geti gengið eðlilega fyrir sig þurfa viðskiptavinir Landsbankans að samþykkja eftirfarandi:
Almennir skilmálar Landsbankans um verðbréfaviðskipti
Stefna Landsbankans um framkvæmd viðskiptafyrirmæla
Útdráttur úr reglum Landsbankans um hagsmunaárekstra
Áhættulýsing vegna markaðsviðskipta með fjármálagerninga
Spurningar og svör um verðbréfaviðskipti (MiFID)
Nánar um verðbréfaviðskipti (MiFID)
MiFID tilskipunin (íslenska)
Upplýsingarit um verðbréfaviðskipti (MiFID) fyrir neytendur gefið út af Samstarfsnefnd evrópskra eftirlitsaðila á verðbréfamarkaði (CESR) þann 7. mars 2008.
Lög um verðbréfaviðskipti
Lög um kauphallir
Upplýsingasíða Fjármálaeftirlitsins um verðbréfaviðskipti (MiFID)
Fyrirvarar
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré