Mannauður

Landsbankinn hefur á að skipa samhentum hópi kraftmikils og metnaðarfulls starfsfólks í skemmtilegu vinnuumhverfi þar sem aðbúnaður er til fyrirmyndar.

Mismunandi leiðir til að sækja um starf

Póstur

Landsbankinn - Mannauður
b.t. Baldur G. Jónsson, mannauðsstjóri
Austurstræti 11
155 Reykjavík

Bréfasími

Faxnúmer Mannauðs Landsbankans er 410 3025. Umsóknir skulu merktar Baldri G. Jónssyni, mannauðsstjóra Landsbankans.

Koma á staðinn

Mannauður Landsbankans er staðsettur í Hafnarstræti 12, 4. hæð, og er umsækjendum velkomið að koma með umsókn sína eða fylla út umsóknareyðublað á staðnum. Umsóknareyðublöð er einnig hægt að nálgast í öllum útibúum og afgreiðslum bankans.

Meðferð umsókna

Trúnaðarmál

Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Auglýst störf

Öllum umsóknum er svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu í hið auglýsta starf.

Skoða laus störf

Almennar umsóknir

Gildistími umsókna er 4 mánuðir og er þeim eytt að þeim tíma liðnum nema umsækjandi óski eftir framlengdum gildistíma.

Starfsumsókn

Sumarstörf

Öllum umsóknum um sumarstörf er svarað. Umsóknarfrestur um sumarstörf fyrir sumarið 2012 rann út 9. mars 2012.

Starfsmannastefna

Landsbankinn leitast við að ráða til sín og hafa í sínum röðum framúrskarandi starfsfólk og efla það í störfum sínum. Til að stuðla að vexti og arðsemi bankans er áhersla lögð á skemmtilegan vinnustað, starfsánægju og gott starfsumhverfi sem og markvissa starfsþróun og þekkingu starfsfólks. Það er viðhorf stjórnenda Landsbankans að það sé starfsfólkið, metnaður þess, kraftur og hollusta sem er lykillinn að farsælum rekstri bankans.

Starfsmannastefna Landsbankans