Samfélagssjóður

Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra verkefna. Árlega eru fimm tegundir styrkja veittar; afreksstyrkir, námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir, samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir. Dómnefndir eru skipaðar fagfólki á hverju sviði.

Styrkir úr Samfélagssjóði Landsbankans

Beinn stuðningur við samfélagið er liður í stefnu bankans um samfélagslega ábyrgð. Stuðningur úr samfélagssjóði kemur til viðbótar við fjölbreytt samstarfsverkefni bankans á sviði mannúðarmála, menningar, menntunar, nýsköpunar og íþrótta um land allt.

Það er stefna Landsbankans að leita til fagfólks um dómnefndarstörf og skipar það meirihluta í öllum dómnefndum. Tímasetningar um úthlutunarfrest allra styrkveitinga árið 2012 liggja fyrir. Opnað verður fyrir umsóknir jafnóðum. Allir umsækjendur þurfa að fylla út sérstakt umsóknareyðublað og senda með umsókn sinni.

Umsóknir um styrki
  Umsóknarfrestur Sækja um
Afreksstyrkir 2. mars Lokið
Námsstyrkir 23. mars Lokið
Umhverfisstyrkir 30. apríl Lokið
Samfélagsstyrkir fyrri úthlutun 4. júní Sækja um
Nýsköpunarstyrkir 14. september Opnað síðar
Samfélagsstyrkir síðari úthlutun 12. október Opnað síðar

Samfélagsstyrkir

Landsbankinn veitir 20 milljónum króna í samfélagsstyrki í ár og verður þeim úthlutað í tvennu lagi. Samfélagsstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum, þar á meðal á sviði mannúðar-mála, menningar og lista, menntunar, rannsókna og vísinda, for-varnar- og æskulýðsstarfs og sértækrar útgáfustarfsemi. Umsóknar-frestur í fyrri úthlutun er 4. júní en í seinni úthlutun 12. október. 

Veittir eru styrkir í þremur þrepum:

  • 1.000.000 kr.
  • 500.000 kr.
  • 250.000 kr.

Nánar um samfélagsstyrki

Afreksstyrkir

Landsbankinn kynnir afreksstyrki sem ætlaðir eru til styðja við bakið á afreksfólki sem iðkar einstaklingsíþróttir. Einnig verða veittir styrkir til ungs íþróttafólks sem á framtíðina fyrir sér. Heildarupphæð styrkja nemur 3.000.000 kr. Umsóknarfrestur var til 2. mars. Styrkirnir skiptast þannig:

  • 6-10 styrkir allt að 300.000-500.000 kr.
  • 2-3 styrkir allt að 100.000-200.000 kr.

Nánar um afreksstyrki

Námsstyrkir

Landsbankinn veitir veglega námsstyrki á hverju ári. Styrkirnir eru fimmtán talsins og heildarupphæð nemur 5.400.000 kr. Umsóknarfrestur er til 23. mars. Styrkirnir skiptast þannig:

  • 3 styrkir til framhaldsskólanáms, 200.000 kr. hver.
  • 3 styrkir til iðn- og verknáms, 350.000 kr. hver.
  • 3 styrkir til háskólanáms (BA/BS/BEd), 350.000 kr. hver
  • 3 styrkir til framhaldsnáms á háskólastigi, 450.000 kr. hver
  • 3 styrkir til listnáms, 450.000 kr. hver

Nánar um námsstyrki

Nýsköpunarstyrkir

Markmið nýsköpunarstyrkja er að gefa frumkvöðlum tækifæri til að þróa nýja viðskiptahugmynd, eldri viðskiptahugmynd á nýju markaðssvæði eða nýja vöru eða þjónustu. Þeim er einnig ætlað að styðja frumkvöðla til kaupa á efni, tækjum eða þjónustu eða sækja námskeið. 

Heildarupphæð styrkja nemur 15.000.000 kr. sem veittir verða í tveimur þrepum.

  • Hærri styrkir – 500.000-2.000.000 kr.
  • Lægri styrkir – 200.000-500.000 kr.

Nánar um nýsköpunarstyrki

Umhverfisstyrkir

Umhverfisstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á sviði umhverfismála og náttúruverndar. Styrkir til umhverfismála byggja á stefnu bankans um samfélagslega ábyrgð hans og skyldur. Heildarupphæð umhverfisstyrkja nemur 5.000.000 kr. og eru veittir í tveimur þrepum. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2012.

Heildarupphæð styrkja nemur 5.000.000 kr. sem veittir verða í tveimur þrepum.

  • 500.000 kr.
  • 250.000 kr.

Nánar um umhverfisstyrki

Almennir styrkir

Við vekjum athygli á því að hægt er að senda inn almenna styrkbeiðni ef umsókn fellur ekki að skilgreiningu samfélagssjóðs.

Kynntu þér málið

  • Sæktu um styrk úr Samfélagssjóði:
    Heimilisfang sjóðsins er: Samfélagssjóður Landsbankans, Austurstræti 11, 155 Reykjavík.