Ísland allt árið – þróunarsjóður

Markmið styrkjanna er að styðja við átakið Ísland allt árið með því að auka hæfni fyrirtækja tengdum ferðaþjónustu til að skapa upplifanir utan háannatíma ferðmannatímabilsins og auka arðsemi fyrirtækja.

Landsbankinn og iðnaðarráðuneytið hafa komið á fót þróunarsjóði til þess að styðja við markaðsátakið Ísland allt árið sem er þriggja ára verkefni ætlað er að styðja við lengingu ferðamannatímabilsins á Íslandi.

Heildarframlag stofnenda sjóðsins var 70 milljónir króna. Stofnendur sjóðsins ætla honum að taka virkan þátt í uppbyggingu fyrirtækja og verkefna í ferðaþjónustu sem skapað geta heilsársstörf og aukið þannig tekjur í þessari mikilvægu atvinnugrein.

Stefnt er að  því að nýta vel þá sérþekkingu sem þegar er til í útibúaneti Landsbankans og undirstofnunum iðnaðarráðuneytisins  (Byggðastofnun, Ferðamálastofa, Nýsköpunarmiðstöð Íslands), til að styðja við einstök verkefni og treysta tengsl sjóðsins við ferðaþjónustuna.

Landsbankinn telur það afar mikilvægt að koma markvisst að uppbyggingu atvinnulífsins í landinu. Til að efla atvinnusköpun hefur Landsbankinn sett á fót nýsköpunarþjónustu og hrint úr vör atvinnu- og nýsköpunarátaki með Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetri.

Fyrri úthlutun úr sjóðnum var 16. mars 2012, en þá fengu 20 verkefni styrki að upphæð alls 38,9 milljónir króna, sjá fréttatilkynningu.

Umsókn

  • Sótt er um í gegnum umsóknarkerfi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, umsóknarfrestur verður auglýstur er nær dregur. 
  • Teymi verkefnisstjóra annast yfirferð og mat umsókna.
  • Stýrihópur skipaður aðilum frá Landsbankanum, iðnaðarráðuneyti, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Ferðamálastofu sér um endanlegar úthlutanir.
  • Úthlutanir fara fram í febrúar.

Stuðningur

Studd verða annars vegar verkefni einstakra fyrirtækja sem haft geta áhrif til lengingar ferðamannatímabils á tilteknum svæðum og hins vegar samstarfsverkefni fyrirtækja sem sameiginlega vilja þróa upplifanir sem geta orðið til þess að lengja ferðamannatímabilið.

Sjóðurinn styrkir verkefni að hámarki 50% af heildarkostnaði.

Helstu verkþættir sem studdir eru:

  • verkefnisstjórn
  • greiningarvinna, undirbúningur og aðkeypt ráðgjöf
  • þróun hugmynda
  • önnur verkefni sem stuðla að lengingu ferðamannatímabilsins

Verkefni sem koma til greina

Um öll verkefni gildir að:

  • verkefnið miðar að lengingu ferðamannatímabils á tilteknu svæði.
  • verkefnið leiði til aukinnar arðsemi fyrirtækja.
  • til grundvallar verkefnis liggur verk- og rekstaráætlun.
  • verkefnið miði að því að auka þekkingu og hæfni fyrirtækja til að skapa upplifanir.
  • gert er grein fyrir því hvernig verkefni styðji við Ísland allt árið.
  • gróf áætlun gerð um samráðsfundi og miðlun áfanga og niðurstaðna.
  • verkefnin komi til framkvæmda á verkefnistíma Ísland allt árið.
  • umsækjandi skal gera grein fyrir árangursmælikvörðum verkefnis.
  • niðurstöður árangursmælinga verða gerðar opinberar. Óski umsækjandi eftir að árangursmælingar séu trúnaðarmál skal það koma fram í umsókn með rökstuðningi.
  • í verkefninu sé langtíma hugsun sem miðar að a.m.k 3 ára samstarfi.

Um samstarfsverkefni gildir að auki að:

  • um er að ræða samstarfsverkefni þriggja eða fleiri fyrirtækja mögulega með stuðningi stofnana, sveitarfélaga og/eða rannsóknarstofnana.
  • Opinberir aðilar geta ekki verið í forsvari fyrir umsókn.
  • þátttakendur í samstarfsverkefni hafa allir skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf.
  • í verkefninu komi fram skýr sýn á sameiginleg markmið aðila samstarfsins.

Hafðu samband

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum varðandi sjóðinn til Sigríðar Ó. Kristjánsdóttir verkefnastjóra hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands eða sendið póst á nyskopun@landsbankinn.is og við svörum þér við fyrsta tækifæri.

Ýmsir aðilar geta veitt aðstoð við gerð umsókna.