Framkvæmdastjórn

Samkvæmt skipuriti bankans eru svið bankans níu: Viðskiptabanki, Fyrirtækjabanki, Endurskipulagning eigna, Markaðir og fjárstýring, Fjármál, Þróun, Áhættustýring, Eignastýring og Bíla- og tækjafjármögnun.

Bankastjóri Landsbankans er Steinþór Pálsson.

Framkvæmdastjórar Landsbankans eru í stafrófsröð: Árni Þór Þorbjörnsson, Frans P. Sigurðsson, Helgi T. Helgason, Hjördís Vilhjálmsdóttir, Hrefna Sigfinnsdóttir, Hreiðar Bjarnason, Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Perla Ösp Ásgeirsdóttir.

Bankastjóri

Steinþór Pálsson

Steinþór Pálsson hefur langa reynslu af stjórnunarstörfum við banka og framleiðslufyrirtæki bæði innanlands og erlendis og mikla reynslu af breytingastjórnun og stefnumótun.

Steinþór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá Edinborgarháskóla. Á árum áður gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra lánasviðs Verzlunarbanka Íslands og varð síðar starfsmaður Íslandsbanka, m.a. sem forstöðumaður lánadeildar, fjárfestingarlána, útibúaþjónustu, áhættustýringar og fyrirtækjaþjónustu, auk þess sem hann var virkur í stefnumótunarstarfi Íslandsbanka og samrunaferli forvera hans. Hann var um hríð fjármála- og rekstrarstjóri líftæknifyrirtækisins Urður, Verðandi, Skuld, en starfaði síðan í átta ár hjá Actavis. Fyrst sem framkvæmdastjóri Actavis á Möltu, þá sem framkvæmdastjóri Actavis í Bandaríkjunum og á árunum 2008-2010 sem framkvæmdastjóri Actavis samstæðunnar á Íslandi á sviði stefnumótunar. 

Steinþór er stjórnarformaður Hamla ehf. og situr í stjórn Samtaka fjármálafyrirtækja. Steinþór er formaður framkvæmdastjórnar, Áhættu- og fjármálanefndar og Lánanefndar. Steinþór tók við starfi bankastjóra í júní 2010.

Framkvæmdastjórar

Árni Þór Þorbjörnsson, Fyrirtækjabanki

Árni er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með diplóma í rekstrar- og viðskiptafræði. 

Hann hefur starfað í Landsbankanum frá 1996. Á fyrstu árunum annaðist hann almenn lögfræðistörf, ráðgjöf og málflutning. Árni var yfirlögfræðingur Fyrirtækjasviðs til ársins 2008, en við stofnun nýja bankans tók Árni við sem framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs og við skipulagsbreytingarnar í október 2010 tók hann við Fyrirtækjabankanum. 

Árni situr í stjórnum Hamla ehf. og Mótus ehf. Hann á sæti í framkvæmdastjórn og Lánanefnd.

Frans P. Sigurðsson, Fjármál

Frans er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með endurskoðun sem sérsvið. 

Frans kom til Landsbankans frá GlaxoSmithKline, en hann var fjármálastjóri fyrirtækisins á Íslandi og í Noregi, þar sem hann hafði aðsetur. Frans tók þátt í uppbyggingu starfs GlaxoSmithKline á Íslandi frá 2004 sem fjármálastjóri og yfirmaður dreifingarmála. Áður starfaði Frans sem ráðgjafi hjá PricewaterhouseCoopers, sem meðeigandi hjá PWC Consulting og síðar hjá IBM Business Consulting Services. 

Frans er stjórnarmaður í Horni fjárfestingarfélagi ehf. Hann á sæti í framkvæmdastjórn og Áhættu- og fjármálanefnd.

Helgi Teitur Helgason, Viðskiptabanki

Helgi lauk embættisprófi í lögum frá Háskóla Íslands 1998 og hóf þá störf sem lögfræðingur og síðar lögmaður í Landsbankanum, þar sem hann annaðist almenn lögfræðistörf, innheimtu, ráðgjöf og málflutning. Helgi leiddi opnun skrifstofu Intrum og Lögheimtunnar á Akureyri vorið 2001 og starfaði þar sem svæðisstjóri og lögmaður á Norðurlandi til vorsins 2004, auk þess að veita stéttarfélögum á Akureyri og félagsmönnum þeirra lögmannsþjónustu. Helgi var útibússtjóri Landsbankans á Akureyri frá árinu 2004 til 2010. 

Helgi er stjórnarmaður í Mótus ehf. Hann á sæti í framkvæmdastjórn og Lánanefnd.

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, Endurskipulagning eigna

Hjördís er með Bs gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands. 

Hún var sérfræðingur á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands frá 1999-2005, hagfræðingur hjá Glitni á árunum 2006-2008 og ráðgjafi fjármálaráðherra á árunum 2009 til september 2010 við verkefni sem féllu fjármálaráðuneytinu í skaut við fall bankanna haustið 2008. Hjördís hefur setið í samstarfsnefnd stjórnvalda um fjármálastöðugleika fyrir hönd fjármálaráðuneytisins og var í samninganefnd um lán ríkisins frá Norðurlöndunum og Póllandi. Hjördís hóf störf í Landsbankanum í október 2010. 

Hún situr í stjórn Hamla ehf. og á sæti í framkvæmdastjórn og Lánanefnd.

Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, Eignastýring

Hrefna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi frá Tryggingaskólanum og löggildingarprófi í verðbréfaviðskiptum. 

Hrefna starfaði sem sjóðsstjóri hjá Arev Verðbréfafyrirtæki frá árinu 2007 áður en hún gekk til liðs við Landsbankann. Þá starfaði Hrefna sem forstöðumaður skráningarsviðs og sérfræðingur á því sviði hjá Kauphöll Íslands frá 1998-2006. Áður gegndi hún starfi forstöðumanns einstaklingsþjónustu hjá Fjárvangi og var starfsmaður á peningamálasviði Seðlabanka Íslands. Hrefna hefur setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja bæði hérlendis og erlendis. 

Hrefna er fulltrúi Landsbankans í stjórn Framtakssjóðs Íslands. Hún á sæti í framkvæmdastjórn og Fjárfestingarráði Eignastýringar.

Hreiðar Bjarnason, Markaðir og fjárstýring

Hreiðar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MSc gráðu í fjármálafræðum frá London Business School og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. 

Hreiðar hefur starfað í Landsbankanum frá árinu 1998, fyrst sem sérfræðingur í Markaðsviðskiptum og síðar í Fjárstýringu. Hann tók við sem framkvæmdastjóri Markaða og fjárstýringar snemma árs 2010. 

Hreiðar á sæti í framkvæmdastjórn og Áhættu- og fjármálanefnd.

Jensína Kristín Böðvarsdóttir, Þróun

Jensína er með BSc gráðu í auglýsingafræðum frá San Jose State University í Kaliforníu, Bandaríkjunum, og lauk MBA prófi með áherslu á neytendahegðun og markaðsfræði frá University of San Diego árið 1995. 

Jensína starfaði áður hjá Símanum þar sem hún var forstöðumaður sölu á Einstaklingssviði frá árinu 2007. Jensína gegndi stöðu markaðsstjóra Globus frá árinu 2004-2007, var framkvæmdastjóri mannauðssviðs IMG á árunum 2002-2004, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar IMG frá 2001, starfsmannastjóri Norðurljósa 1999-2001 og tók þátt í mótun og uppbyggingu áðningarþjónustu Gallup á árunum 1997-1999. Jensína er stjórnarformaður Reiknistofu bankanna hf. og stjórnarmaður í Frumtaki GP ehf. 

Hún á sæti í framkvæmdastjórn og er formaður Öryggisnefndar, auk þess að starfa með Starfskjaranefnd.

Perla Ösp Ásgeirsdóttir, Áhættustýring

Perla er með MSc gráðu í fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík. 

Hún starfaði hjá Seðlabanka Íslands á árabilinu 2005-2010 og hjá Rannsóknarnefnd Alþingis árið 2009. Perla sinnti m.a. eftirliti með fjármálafyrirtækjum og -mörkuðum hjá Seðlabanka Íslands og annaðist gerð áhættulíkana fyrir íslenskan fjármálamarkað. Perla var ráðin forstöðumaður Áhættustýringar Landsbankans í apríl 2010 og framkvæmdarstjóri í október. 

Perla á sæti í framkvæmdastjórn, Lánanefnd og í Áhættu- og fjármálanefnd.