Skipurit

Skipuriti bankans er ætlað að endurspegla stefnu og áherslur bankans. Viðskipta- og afkomueiningar fá aukið vægi, þar sem lykiláhersla er lögð á þjónustu við viðskiptavini, en við þær styðja öflugar miðlægar einingar. Með þessum hætti vilja forsvarsmenn Landsbankans leggja áherslu á að Landsbankinn verði hreyfiafl í íslensku samfélagi sem vinnur náið með einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að uppbyggingu íslensks samfélags.

Viðskiptasviðin voru í upphafi ársins fimm talsins: Viðskiptabanki, Fyrirtækjabanki, Fjárstýring og markaðir, Eignastýring og Endurskipulagning eigna. Við samruna SP-Fjármögnunar og Avant hf. varð til Bíla- og tækjafjármögnun, sjötta tekjusviðið. Hin meginsviðin eru Áhættustýring, Fjármál og Þróun.

Skipurit Landsbankans

 

Skipurit bankans á PDF formi