Opnir fundir

Landsbankinn þinn er heiti á stefnu Landsbankans. Bankinn hefur breyst mikið og mun breytast og eflast enn frekar í takt við nýja stefnu. Við skiptum ekki um nafn heldur hugarfar.

Landsbankinn heldur áfram

Við höldum áfram að móta Landsbankann í takt við nýja stefnu. Bankinn vill vera hreyfiafl og beita sér af krafti fyrir uppbyggingu öflugs atvinnulífs. Haldnir verða fundir um allt land með áherslu á fjárfestingar og nýsköpun. Við viljum vera opinn banki, ganga lengra í upplýsingagjöf og setjum okkur skýr markmið að vera til fyrirmyndar í þjónustu við viðskiptavini.

Landsbankinn mun leita uppi arðbær verkefni til að knýja áfram hjól atvinnulífsins. Við munum stuðla að aukinni fjárfestingu, meðal annars með því að leiða saman áhugasama fjárfesta og ung og upprennandi fyrirtæki.

Landsbankinn ætlar að vera til fyrirmyndar og veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi persónulega þjónustu. Við munum styrkja fríðindakerfi okkar, bjóða fjölbreytta valkosti í inn- og útlánum og vera áfram leiðandi í þróun netlausna.

Við sýnum samfélagslega ábyrgð í daglegum störfum okkar, sýnum hagkvæmni og skilvirkni í rekstri og á árinu mun Landsbankinn ljúka almennu uppgjöri vegna sérstæðra aðstæðna í skuldamálum heimila og fyrirtækja. Landsbankinn heldur áfram að þróast í þágu viðskiptavina, eigenda og samfélagsins alls.

Opnir fundir um land allt

Landsbankinn heldur átta opna fundi í febrúar þar sem fjallað verður um fjárfestingu, nýsköpun og uppbyggingu atvinnulífsins.

Steinþór Pálsson bankastjóri kynnir stefnu og áherslur bankans. Einnig verður fjallað um þjónustu bankans við nýsköpunarfyrirtæki. Fulltrúar Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins fjalla um hlutverk sjóðsins og þá möguleika sem blasa við á árinu 2012 og forsvarsmenn nokkurra fyrirtækja kynna árangursrík sprotaverkefni.

Opnu fundirnir eru haldnir til að eiga opinskáar samræður við landsmenn þannig að við getum enn bætt þjónustu okkar.

Að loknum erindum verða pallborðsumræður með fyrirlesurum og stjórnendum bankans.

Átta fundarstaðir

Sauðárkrókur

  • Þriðjudagur 14. febrúar kl. 20
  • Mælifell

Reykjanesbær

  • Fimmtudagur 16. febrúar kl. 20
  • Stapi

Kópavogur

  • Mánudagur 20. febrúar kl. 20
  • Salurinn

Snæfellsbær

  • Þriðjudagur 21. febrúar kl. 20
  • Félagsheimilið á Klifi

Ísafjörður

  • Miðvikudagur 22. febrúar kl. 20
  • Edinborgarhusið

Selfoss

  • Þriðjudagur 28. febrúar kl. 20
  • Hótel Selfossi

Akureyri

  • Miðvikudagur 29. febrúar kl. 20
  • Menningarhúsið Hof

Fjarðabyggð

  • Fimmtudagur 1. mars kl. 20
  • Safnaðarheimili Reyðafjarðarkirkju