Hér má finna svör við algengum spurningum. Ef þú óskar frekari upplýsinga um áhrif nýju verðbréfaviðskiptalaganna á samband þitt við Landsbankann þá vinsamlegast hafðu samband við Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans eða þinn tengilið innan bankans.
Þeir skilmálar og reglur sem Landsbankinn hefur sett leiða af tilskipun Evrópusambandsins og nýjum lögum um verðbréfaviðskipti. Landsbankinn er ekki í aðstöðu til að semja um, eða gera breytingar á einstökum þáttum þeirra. Hér er í raun um að ræða reglur um samskipti viðskiptavina og bankans sem ætlaðar eru til að skera úr vafamálum og tryggja örugg og farsæl viðskipti.
Bankanum og starfsmönnum hans er ekki heimilt að veita milligöngu um verðbréfaviðskipti án þess að fá áður samþykki viðskiptavinar fyrir nýjum reglum og skilmálum.
Ekki er betur vitað en að ákvæði reglna og skilmála Landsbankans séu í öllum aðalatriðum sambærilegar við reglur annarra fjármálafyrirtækja á Íslandi og raunar innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Þá getur Landsbankinn ekki veitt þá ráðgjöf sem viðeigandi er í hverju tilfelli.
Viðskiptavinur skal hafa samband við tengilið sinn hjá Landsbankanum.
Ráðgjafar Landsbankans nota þær upplýsingar til að veita þá ráðgjöf sem óskað er eftir. Landsbankinn mun ekki nota þessar upplýsingar í neinum markaðslegum tilgangi.
Landsbankinn hf. Austurstræti 11, 155 Reykjavík, Kt. 471008-0280
Swift: NBIIISRE Reglur Lagalegur fyrirvari Umboðsmaður viðskiptavina Veftré